RN 100 TL afturljós 100lm - SÝNISHORN
SÝNISHORN í umbúðum
RN 100 afturljósið er hreyfinæmt ljós með innbyggðum hraðaskynjara. Ljósið byrjar að blikka hratt þegar þú bremsar eða hægir á þér, til að vekja á þér athygli. RN 100 veitir stöðugt blikkandi ljós og býr yfir snjall stillingum, og veitir þannig öryggi hvort sem þú ert í dagsbirtu eða myrkri. Með því að smella einu sinni stillir þú birtustigið og hraða blikksins, með því að smella tvisvar ferðu í gegnum forforritaðar stillingar og með því að halda takkanum inni er slökkt eða kveikt á ljósinu. Ljósið man hvaða stilling var síðast notuð.
Þegar rafhlaðan verður lág verður LED stöðuljósið rautt, og þegar u.þ.b. 20 mínútur eru eftir fer það sjálfkrafa í lágmarksorkuham sem blikkar, til að tryggja að þú hafir nægt ljós til að komast heim.
Eiginleikar
- Gegnsær ljósleiðari veitir hámarks lýsingu í 100 lúmen.
- Ljósið er sýnilegt í 260° sem gefur þér vörn frá öllum hliðum.
- 8 stillingar: 3 stöðugar stillingar, 4 blikkandi stillingar og ein snjallstilling.
- Innbyggður hreyfiskynjari eykur sjálfkrafa birtustig þegar bremsað er.
- Birtuskynjari stillir birtustig sjálfkrafa eftir breytingum á umhverfi.
- Lágmarksorkuhamur (sjálfkrafa) eykur líftíma á skilvirkan hátt.
- Fjölbreyttir möguleikar til að festa það á hnakka og mismunandi sæti
- Stillingarminni, rafhlöðuvísir og hægt að hlaða með USB snúru.
- Vönduð og fislétt hönnun, 36 gr, og með IPX6 vatnsheldni.