Staðsetningartæki og festing í hjólagaffal
Komdu SkyTag staðsetningartækinu fyrir í gaffli hjólsins með festingu sem er sérstaklega hönnuð fyrir tækið. Festingin er auðveld í notkun og samsetningu og býður upp á annan uppsetningarmöguleika en hefðbundin utanáliggjandi hjólafesting.
SkyTag Duos virkar með bæði Apple og Android og tengist annaðhvort Apple Find My eða Google Find Hub. Þannig geturðu nýtt staðsetningarnet þess kerfis sem þú notar, auk þess að láta tækið gefa frá sér hljóð þegar þú leitar að því í nágrenninu.
Innihald:
SkyTag Duos staðsetningartæki fyrir Android og Apple
Hjólafesting í gaffal fyrir SkyTag
Tæknilegar upplýsingar:
- Tengingar: Bluetooth 5.3 með allt að 50 metra drægni við hagstæðar aðstæður.
- Hljóðmerki: Innbyggður hátalari með allt að 100 dB hljóðstyrk.
- Rafhlaða: Skiptanleg CR2032 hnapparafhlaða með allt að 16 mánaða endingu í biðstöðu.
- Festing: Sérhönnuð SkyTag-festing til uppsetningar í gaffal hjólsins.
Staðsetning utan Bluetooth-drægni byggir á Apple- eða Google-staðsetningarnetinu. SkyTag er því ekki sjálfstætt GPS-tæki sem sýnir samfellda staðsetningu í rauntíma.