Skip to content

ALLTY 2000 öflugt 2.000 lm hjólaljós

frá Olight
Original price 30.940 kr. - Original price 30.940 kr.
Original price
30.940 kr.
30.940 kr. - 30.940 kr.
Current price 30.940 kr.
Í ALLTY 2000 eru tvær kraftmiklar LED díóður og innbyggt dagljós. Þetta er fjölhæft ljós með tveimur 3.6V 18650 rafhlöðum og hámarks lýsingu í allt að 2000 lúmen. ALLTY 2000 er hannað með það í huga að endurkast frá hliðum þess auki sýnileika.

ALLTY 2000 er mjög góður kostur bæði fyrir götu- og fjallahjólreiðar. OLED skjárinn sýnir ljósastillingar, stöðu rafhlöðunnar og hversu langan tíma hún dugar, sem getur auðveldað hjólreiðafólki skipulag. Hægt er að festa ljósið kirfilega á festingu á handfanginu eða undir festingu fyrir GoPro myndavélar. Tvískipt ljósið er hannað til þess að gefa frá sér jafna lýsingu, sem nær yfir breiðara svæði og lýsir betur upp veginn.

Eiginleikar
  • ALLTY 2000 er fjölvirkt reiðhjólaljós með lýsingu sem nær að hámarki 2000 lúmen.
  • Hágæða linsa er á ljósinu og hönnunin á hliðum þess er gerð til að auka sýnileika.
  • Dagljósið vekur athygli bílstjóra og gangandi vegfaranda til að auka öryggi.
  • OLED skjárinn sýnir ljósastillingar, stöðu rafhlöðunnar og hversu langan tíma hún dugar fyrir öll 17 birtustigin, sem getur auðveldað þér að búa til betra hjólaplan.
  • Handhægt rafhlöðustæði með tveimur 3500mAh 18650 rafhlöðum.
  • Hægt að festa á fjölbreyttan hátt, hægt að setja á tölvufestingar og á GoPro eða Garmin festingar.
  • Ljósið geymir alltaf stillinguna sem var síðast notuð þegar kveikt er á því.
  • Ljósið er með IPX 5 vatnsheldni sem verndar það gegn vatnsgusum úr öllum áttum.

Birtustillingar og tími